|
Fólkið í Hestagallery
Lúther Guðmundsson hefur stundað hestamennsku frá blautu barnsbeini. Í 15 ár tamdi og þjálfaði Lúther hesta. Í 7 ár var hann staðsettur í Danmörku og keppti tvisvar sinnum með með danska landsliðinu. Lúther hefur keppt á fjölda mótum og heldur hann hesta ásamt fjölskyldu sinni í Mosfellsbæ.

Lúther Guðmundsson
Sambýliskona Lúthers er ofurkonan Kolbrún Jónsdóttir og á hún dóttirina Katrínu Sveinsdóttur sem m.a keppti í úrslitum á Íslandsmóti barna og unglinga árið 2007.
.jpg)
Katrín Sveinsdóttir
Arnar Logi Lúthersson er eldri sonur Lúthers og hefur hann mikið keppt síðustu ár og var m.a. í úrslitum í barnaflokki á Landsmóti 2006, úrslit í bæði tölti og fjórgangi barnaflokki á Íslandsmóti 2006 og sýndi sama árangur þegar hann fór í unglingaflokk. Arnar Logi var kosinn besti knapi Hestamannafélagsins Harðar á nýafstaðinni uppskeruhátiíð Harðar í unglingaflokki.

Arnar Logi á Landsmóti 2006

Arnar Logi á Landsmóti 2006

Arnar Logi á Landsmóti 2006

Lúther og Arnar Logi á Landsmóti 2004
Prinsinn og aðaljaxlinn í ræktun Lúthers er Úlfar Darri. Úlfar og Lúther hafa haft það sem gullna reglu að keppa saman í pollaflokk hjá Herði og hefur Úlfar fengið fengið 12 sinnum gullpening fyrir þáttöku sína. Úlfar Darri er einn af þessum perlum sem gerir ekkert annað en að gleðja það fólk sem er í hanns návist og oft er stutt í púkann í honum.

Prinsinn og aðalmaðurinn Úlfar Darri
Erling Sigurðsson er búinn að vera viðloðandi hestamennsku í hálfa öld, hvort sem það er á keppnisvellinum eða í kennslu. Elli Sig eins og flestir þekkja hann keppti fyrst í stökki árið 1956 og þá byrjaði eiginlegur ferill Ella Sig. Það mikill fengur fyrir okkur að hafa Ella í okkar liði enda maðurinn uppfullur af fróðleik og hokinn af reynslu.

Elli Sig og Hekla frá Mýrdal
|